Hópur aðstandenda Sparisjóðs Skagafjarðar hefur ákveðið að óska eftir því að farið verði ofan í saumana á gjörningum tengdum yfirtöku Sparisjóðs Mýrasýslu og tengdra aðila á Sparisjóði Skagafjarðar, en sú yfirtaka fór fram í ágúst 2007.

Þetta kemur fram á vef Skessuhorns.

Fram kemur að Bjarni Jónsson og Gísli Árnason eru í forsvari fyrir þessum hópi skagfirskra sparisjóðsmanna og telja líklegt að farið verði fram á lögreglurannsókn á undirbúningi og framkvæmd yfirtökunnar.

Eftir því sem fram kemur á vef Skessuhorns má vænta yfirlýsingar um málið. Það sem þeir félagar vilja að rannsakað verði lýtur að ýmsum þáttum og gjörðum sem tengjast yfirtökunni.

„Við erum þess fullvissir að yfirtaka sparisjóðsins samræmdist ekki lögum og að Fjármálaeftirlitið hafi alls ekki sinnt skyldum sínum í eftirliti með sölunni,” hefur Skessuhorn eftir þeim Gísla og Bjarna.