Í bréfi sem Helgi Sigurðsson hæstaréttarlögmaður hefur sent stjórn VR er því haldið fram að verulegir annmarkar hafi verið á kosningu til stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna (LIVE) sem fram fór í vikunni. Þetta kemur fram á mbl.is og er niðurstaða Helga sú að kosningin sé þar af leiðandi markleysa eða að minnsta kosti ógildanleg.

Bréfið sendi Helgi fyrir hönd Ástu Rutar Jónasdóttur, stjórnarformanns Lífeyrissjóðs verslunarmanna, og var það stílað á Ólafíu Rafnsdóttur, formann VR. Farið er fram á að kosningin verði endurtekin og fari fram í samræmi við gildandi lög og reglur. Morgunblaðið fjallar ítarlegar um málið í dag.

Ásta Rut hefur verið stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna undanfarin þrjú ár en fékk ekki kosningu í aðalstjórn í vikunni.