Á fyrsta fundi borgarstjórnar þennan starfsveturinn sem lauk á níunda tímanum í gærkvöldi var tillögu Sjálfstæðisflokksins um opinbera rannsókn vegna milljarða tjóns á húsi Orkuveitu Reykjavíkur vísað til borgarráðs.

Var það gert að tillögu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sem einnig lagði til að tillögu borgarfulltrúa Framsóknar- og flugvallarvina um úttektarnefnd vegna sama máls sem Viðskiptablaðið hefur greint frá væri vísað til frekari umfjöllunar í borgarráði.

Sjálfstæðismenn lögðu af þessu tilefni fram bókun þar sem þeir segja meirihlutann tefja málið án haldbærrar ástæðu:

„Við leggjumst gegn tillögu borgarstjóra um að tillögu Sjálfstæðisflokksins, um opinbera rannsókn vegna milljarða tjóns á húsi Orkuveitu Reykjavíkur, verði vísað til borgarráðs,“ segir í bókun borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.

„Borgarstjórn er ekkert að vanbúnaði að samþykkja slíka tillögu enda liggja fyrir margvíslegar upplýsingar sem kalla á að málið verði rannsakað í heild sinni. Meirihluti Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna kýs hins vegar að tefja slíka rannsókn með því að vísa tillögunni til borgarráðs án haldbærrar ástæðu.“

Byggingarkostnaður einnig skoðaður

Í tillögunni sjálfri kemur fram að flokkurinn vill að ekki einungis verði orsakir tjónsins rannsakað heldur einnig hví byggingarkostnaður fór langt fram úr áætlunum.

Tillagan er svohljóðandi:

„Borgarstjórn samþykkir að fram fari opinber rannsókn vegna milljarða tjóns sem orðið hefur á húsi Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi. Í þeirri rannsókn verði leitast við að leiða í ljós orsakir tjónsins og hvaða lærdóm megi draga af málinu til framtíðar.

Athugað verði hvernig staðið var að byggingu hússins á sínum tíma og hvernig staðið hefur verið að viðhaldi þess eftir að það var tekið í notkun. Meðal annars verði kannað hvernig pólitískar ákvarðanir voru teknar um byggingu hússins og stækkun þess á framkvæmdatíma.

Þá verði athugað hvernig ákvarðanir voru teknar um einstaka þætti málsins, t.d. hönnun, byggingaraðferðir, efnisval o.s.frv. Fjallað verði um orsakir þess að byggingarkostnaður fór langt fram úr áætlunum.

Einnig verði birtur heildarkostnaður við byggingu hússins og allur kostnaður vegna viðhalds og endurbóta frá því það var tekið í notkun. Þá verði könnuð lagaleg staða Orkuveitunnar í málinu og hugsanlegur bótaréttur vegna umrædds tjóns.“