Landsvirkjun hvetur til opinnar umræðu um orkumál og býður alla velkomna á ársfund sinn sem fram fer á morgun, þriðjudag 15. maí, klukkan 14:00 á Hilton Reykjavík Nordica hótel. Í ár er hann haldinn undir yfirskriftinni: Á traustum grunni.
Síðasta ár voru met slegin í sölu og vinnslu rafmagns segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Rekstrarafkoma fyrirtækisins hefur aldrei verið betri og efnahagurinn er traustur.
Á ársfundinum verður fjallað um þessa stöð, en einnig verða kynnt þau tækifæri og þær áskoranir sem framundan eru og fjallað um raforkumarkaðinn í víðu samhengi. Þó allir séu velkomnir þarf að skrá sig á heimasíðu félagsins.
Dagskrá ársfundar Landsvirkjunar árið 2018 er sem hér segir:
- Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra flytur ávarp
- Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður flytur ávarp
- Hörður Arnarson forstjóri flytur erindi undir yfirskrift fundarins: Á traustum grunni - gott ár að baki
- Selma Svavarsdóttir forstöðumaður á starfsmannasviði flytur ávar undir yfirskriftinni: Að virkja jafnréttið
- Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri flytur erindi undir yfirskriftinni: Áhrif aukinnar eftirspurnar á raforkumarkað
- Stefanía G. Halldórsdóttir framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs flytur erindi undir yfirskriftinni: Orka í dansi framtíðarinnar