Að því er kemur fram í breska blaðinu The Independent í dag hafa fulltrúar fjárfestingasjóðsins Texas Pacific reynt að nálgast Sir Phillip Green í þeim tilgangi að koma á samstarfi um kaup á skuldum Baugs.

Sem kunnugt er hafa báðir þessir aðilar reynt að kaupa skuldapakka Baugs hjá íslenskum bönkum sem samkvæmt breskum fjölmiðlum er nú talin vera tveir milljarðar punda.

Að því er kemur fram í The Independent er Green en staðfastur í að hreppa skuldapakkann.