Apple hefur farið fram á að átta Samsung símar verði teknir úr sölu í Bandríkjunum. Símarnir sem erum ræðir eru;Galaxy S 4G, Galaxy S2 AT&T model, Galaxy S2 Skyrocket, Galaxy S2 T-Mobile model, Galaxy S2 Epic 4G, Galaxy S Showcase, Droid Charge and Galaxy Prevail.

Eins og áður hefur komið fram er þetta í framhaldi af sigri Apple í dómsmáli gegn Samsung þar sem Samsung er sagt hafa stolið höfundarétti Apple í hönnun snjallsíma.

Hlutabréf í Apple hækkuðu um 1,88% á mánudag á Wall Street en hlutabréf í Samsung féllu um 7%.