Landssamband smábátaeigenda hefur óskað eftir því við sjávarútvegsráðherra að hann beiti sér fyrir breytingu á lögum um stjórn fiskveiða.

Ákvæði um strandveiðar verði þá breytt þannig að í stað þess að strandveiðar standi yfir í fjóra mánuði verði leyfin gefin út til tólf mánaða. Engar hömlur verði á því hvenær dagarnir verði nýttir.

Nú er fyrirkomulagið þannig að strandveiðar má stunda á tímabilinu frá maíbyrjun til ágústloka, samtals í 48 daga sem skiptast jafnt á milli mánaða.

Landssambandið segir þessa beiðni tilkomna vegna áhrifa af COVID-19. Jafnframt er lagt til að ráðherra felli úr gildi reglugerð um hrygningarstopp, veiðiskylda verði afnumin, takmarkanir á flutningi ónýttra aflaheimilda milli ár verði felld úr gildi og heimilt verði að fresta greiðslu veiðigjalds sem verður á eindaga 15. maí nk.

Í niðurlagi bréfs LS til ráðherra segir:

„Lögð er áhersla á að þær breytingar sem hér eru lagðar til á ákvæðum laga og reglugerða muni hafa það að markmiði að auka sveigjanleika við nýtingu auðlindarinnar í því skyni að sem mest verðmæti fáist. LS telur að hinar óþekktu og gríðarlega krefjandi aðstæður sem nú ríkja krefjist þess að leitað verði allra leiða til að hámarka heildarhag landsmanna og eru þessar tillögur liður í því."