Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um yfirskattanefnd.

Í umsögninni kemur meðal annars fram að Viðskiptaráð telji að stytta ætti þann frest sem stjórnvald hefur til að skila umsögn um kæru til yfirskattanefndar í þrjátíu daga og skylda ætti stjórnvald til að tilkynna það til yfirskattanefndar svo fljótt sem auðið sé hyggist það ekki veita umsögn um mál. Telur ráðið að slíkar breytingar væru til þess fallnar að stytta málsmeðferðartíma fyrir nefndinni.

Þá tekur Viðskiptaráð undir sjónarmið þess efnis að væru fleiri úrskurðir yfirskattanefndar birtir mætti ætla að málum hjá henni myndi fækka þegar skattaðilum yrði ljóst hvernig lögum hefði verið beitt í sambærilegum málum hjá nefndinni.

Einnig telur ráðið að ekki fylgi einungis óvissa um framkvæmd skattalaga vegna þess ógagnsæis sem ríkt hafi um úrskurði yfirskattanefndar heldur halli á skattaðila í samskiptum við stjórnvöld af þessum sökum.

Í umsögninni kveðst Viðskiptaráð hafa fengið ábendingu um að í einhverjum tilvikum hafi stjórnvöld grundvallað niðurstöður sínar í deilumálum við borgara á úrskurði yfirskattanefndar sem ekki hafi verið birtur almenningi. Enn fremur hafi ríkisskattstjóri vísað til óbirtra úrskurða í málatilbúnaði sínum. Telur Viðskiptaráð að núverandi fyrirkomulag valdi því aðstöðumun á kostnað almennra borgara og auki hættu á misjafnri meðferð sambærilegra mála.

Umsögn Viðskiptaráðs má nálgast hér .