Ríkisendurskoðun hvetur Framkvæmdasýslu ríkisins til að halda áfram umbótum sínum við gerð og utanumhald skilamats opinberra framkvæmda. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri eftirfylgnisskýrslu Ríkisendurskoðunar um Framkvæmdasýslu ríkisins. Þetta kemur fram í frétt Ríkisendurskoðunar.

Ríkisendurskoðun ítrekar enga þeirra sjö ábendinga sem komu fram í stjórnsýsluúttekt stofnunarinnar árið 2014, þar sem að Framkvæmdasýslan og fjármála- og efnahagsráðuneyti, hafa bætt úr þeim annmörkum sem þá var bent á eða vinna nú að slíkum umbótum.

Til að mynda stefnir fjármála- og efnahagsráðuneyti að því að aðlaga starfsemi og lagaumhverfi Framkvæmdasýslunar að lögum um opinber fjármál. Í því felst að meðal annars að endurskoða verksvið Framkvæmdasýslunnar.

Vegna þeirra vinnu sem stendur yfir telur Ríkisendurskoðun mikilvægt að árétta mikilvægi þess að greint sé á milli framkvæmda annars vegar og stjórnsýslu hins vegar við þau verkefni á vegum ríkisins sem heyra undir lög um skipan opinberra framkvæmda. „Að mati Ríkisendurskoðunar getur aðkoma Framkvæmdasýslunnar að gerð frumathugana grafið undan þeirri aðgreiningu,“ segir í frétt Ríkisendurskoðunar.