Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, og Michael O. Leawitt, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, endurnýjuðu viljayfirlýsingu um samstarf þjóðanna á heilbrigðissviði á dögunum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Þá kemur fram að Árni M. Mathiesen og Michael O. Leawitt hittust í ferð fjármálaráðherra til Bandaríkjanna á dögunum og endurnýjuðu þessa viljayfirlýsingu um víðtækt samstarf á heilbrigðissviði, en yfirlýsingin byggist á viljayfirlýsingu sem gerð var við heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna fyrir nokkrum árum.

Viðstaddir undirritunina voru auk ráðherrana, Albert Jónsson, sendiherra Íslands í Washington, og Davíð Á. Gunnarsson, sérstakur sendifulltrúi utanríkisráðuneytisins á heilbrigðissviði.

Með endurnýjun viljayfirlýsingarinnar er ekki aðeins gert ráð fyrir samstarfi þjóðanna á grundvelli samstarfs við National Institute of Health (NIH) heldur nær rammasamningurinn til allra vísindastofnana sem heyra undir bandaríska heilbrigðisráðuneytið (Department of Health and Human Services).

Meðal þess sem rætt hefur verið um er að Íslendingar og Bandaríkjamenn efli samstarf sitt í rannsóknum á áhrifum ofnotkunar áfengis og annarra vímuefna, í rannsóknum á gæðum í heilbrigðisþjónustunni, í rannsóknum á heilsufari kvenna og þá hefur verið rætt um að beita sér fyrir rannsóknum á heilsufari manna á norðurslóð.