Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, vill fá afrit af öllum tölvupóstsamskiptum skjólstæðings síns og Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, á ákveðnu tímabili á árunum 2007 og 2008 og varða lánveitingu bankans til félagsins FS 38 vegna kaupa þess á fjórðungshlut í bresku skartgripakeðjunni Aurum Holding. Lánið var veitt í júlí árið 2008 og hljóðaði upp á sex milljarða króna. Fjórðungshluturinn var í eigu fjárfestingarfélagsins Fons, félags Pálma Haraldssonar.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, hefur hafnað því að veita Gesti afrit af gögnunum en sagst tilbúinn til að veita honum aðstöðu til að skoða þau.

Sakborningar í málinu eru auk Jóns Ásgeirs og Lárusar Welding þeir Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson, fyrrverandi starfsmenn Glitnis.

Þingað var í Aurum-málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og var þar m.a. fjallað um frávísun Hæstaréttar á kröfu verjenda sakborninga í málinu. Þeir kröfðust þess að fá aðstöðu til að kynna sér gögn málsins. Málinu var vísað frá þar sem ekki var talin vera kæruheimild til staðar. Gögnin í Aurum-málinu eru umfangsmikil og telja nokkuð þúsund blaðsíður.

Málinu var frestað til 23. september næstkomandi til stutts málflutnings um kröfu Gests.