Helgi Vilhjálmsson, oft kenndur við Góu, hyggst opna fleiri Pizza Hut-staði hér á landi á næstunni, en þetta kemur fram í samtali hans við Markaðinn á Fréttablaðinu .

Helgi rekur þegar Kentucky Fried Chicken og Taco Bell á Íslandi en nýlega fjárfesti hann í Pizza Hut þar sem rekinn er einn staður í Smáralind.

„Við bættum þessu í flotann hjá okkur af því að þetta er sama fyrirtækið úti í Ameríku. Þeim fannst kannski best að þetta færi hingað. Framundan er að láta hjólin snúast og spýta í lófana. Bæta við nokkrum stöðum,“ segir Helgi í samtali við Markaðinn.

Hann býst við að opna einn stað síðar á þessu ári en staðsetning hafi hins vegar ekki verið ákveðin. „Við höfum nú dálítið mikið á okkar könnu og svo eru verkföll og það setur allt strik í reikninginn.“