Sævar Freyr Þráinsson, var ráðinn í stöðu bæjarstjóra á Akranesi í mars á þessu ári, stuttu eftir að hann lét af stöðu forstjóra 365 miðla. Hann segir starfinu fylgja fjölmargar áskoranir, bæði í atvinnu- og skipulagsmálum. Verktakar hafa sýnt mikinn áhuga á að taka þátt í uppbyggingu í bænum, en hækkandi fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur haft það í för með sér að fólk hefur sótt í ódýrara húsnæði víðsvegar um landið, en þar er Akranes ekki undanskilið.
Áherslan sett á atvinnumálin
Sævar hefur komið víða við á sínum ferli, en hann hefur einnig starfað sem forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Símanum, auk þess sem hann hefur gengt stjórnarformennsku hjá fyrirtækjum á borð við Sensa og On-Waves. Sævar segir það vera skemmtilega áskorun að vera kominn í þessa stöðu.
„Ég hef búið hér síðustu 12 ár og bara keyrt í vinnu. Það eru mikil forréttindi að fá núna að starfa í bæ sem ég bý í, ólst upp í og elska,“ segir Sævar.
Sævar var í raun ný sestur í sæti bæjarstjóra þegar í ljós koma að HB Grandi hygðist leggja niður starfsemi í bænum.
„Þetta var mikið áfall fyrir bæinn og kallaði á það að við myndum setja áhersluna á atvinnumálin. Ég hafði í raun alltaf ætlað mér það, en þessi ákvörðun ýtti undir mikilvægi þess að reyna að laða að fólk og fyrirtæki.“
Kappkosta við að auka lóðaframboð
Hækkandi fasteignaverð hefur haft það í för með sér að fólk hefur sótt í hagstæðara húsnæði fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Sævar segir bæinn því kappkosta við að auka lóðaframboð til þess að koma til móts við aukningu í eftirspurn. „Verktakar sýna okkur mikinn áhuga. Við erum að koma með þrjá stóra byggingarreiti og að klára deiliskipulag sem mun stórauka framboð á íbúðum.“
Þessir þrír byggingarreitir eru oftast nær kallaðir sementsreitur, Dalbrautarreitur og Skógarhverfi. Sævar segir það þó einnig vera í kortunum að bæta við fjórða reitnum þó það sé ekki hægt að fullyrða um það hvenær í framtíðinni það muni eiga sér stað. Hann bætir einnig við að Sementsreiturinn sé háður ákveðnum annmörkum. „Það þarf að rífa sementsverksmiðjuna áður en hægt verður að byggja þarna. Þetta er allt í ferli núna svo við ættum að ná að klára þau niðurrif fyrir næsta haust og svo verður ákveðið hver fær þau verkefni næsta haust.“
Forsendur fyrir 9000 manna bæ
Sævar segir aðsóknina frá fólki vera þó nokkra. „Þegar ég tók við voru um 7051 íbúar hér í bænum, en þeim hefur fjölgað í 7200. Með því að byggja á þessum þremur reitum væri hægt að bjóða upp á alls 760 íbúðir og þar með væri í raun hægt að gera Akranes að 9000 manna bæ. Fjölgunin hér hefur vissulega ekki verið sú sama og til að mynda í Reykjanesbæ eða Árborg, en þó er það nægur fjöldi til þess að réttlæta frekari uppbyggingu.“
Bæjarstjórinn er einnig stoltur af þeim innviðum sem Akranes hefur upp á að bjóða. „Við getum verið virkilega stolt af fjölbreyttu og öflugu íþróttastarfi. Skólar og leikskólar hafa komið gríðarlega vel út úr könnunum, en hlutfall menntaðra kennara er hér með því hæsta sem þekkist á landinu. Fólk sækir í þetta fjölskylduvæna umhverfi.“ Alls eru fjórir leikskólar, tveir grunnskólar og einn framhaldsskóli í bænum.
Nánar er fjallað um málið í Fasteignum, sérblaði Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast eintak af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .