Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men hefur gert útgáfusamning við útgáfurisann Universal Music Group um útgáfu á fyrstu plötu þeirra, My Head Is an Animal, utan Íslands.

Of Monsters and Men, sem sigraði í Músíktilraunum árið 2010, hefur notið mikilla vinsælda undanfarið og þá sérstaklega lagið Little Talks sem er að finna á fyrrnefndri hljómplötu. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins er um útgáfu og dreifingarsamning að ræða og mun hljómplatan koma út í Bandaríkjunum í byrjun næsta árs.

Haraldur Leví Gunnarsson hjá Record Records, útgefanda hljómsveitarinnar, vildi í samtali við Viðskiptablaðið ekki tjá sig um samninginn og varðist allra frétta af málinu.