Mjólkurbúið KÚ ehf. hefur óskað eftir undanþágu atvinnuvegaráðuneytisins til innflutnings á lífrænni mjólk frá Danmörku. Mjólkurbúið framleiðir ostinn Glaðning úr lífrænni mjólk sem keypt hefur verið frá Mjólkursamsölunni.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að frá áramótum hafi gengið mjög erfiðlega að fá hráefni til framleiðslunnar frá Mjólkursamsölunni án þess að viðhlítandi skýringar hafi fengist. Ekki verði búið við slíkt og því hefur KÚ óskað eftir heimild ráðuneytisins til að flytja inn allt að 8000 lítrum á viku af lífrænni mjólk frá Danmörku.

Í tilkynningunni er haft eftir Ólafi M. Magnússyni, framkvæmdastjóra hjá KÚ að hann vænti þess að ráðuneytið bregðist fljótt og vel við þessari beiðni því það sé ekki hægt að una við að Mjólkursamsalan geti í krafti einokunarstöðu lokað fyrir hráefnissölu til einstakra aðila sem séu þeim ekki þóknanlegir.