John Cohn, yfirlýstur nörd með yfir 30 einkaleyfi á samviskunni og einn virtasti verkfræðingur IBM, hélt skemmtilegan fyrirlestur á hádegisfundi Origo á Hotel Nordica á dögunum. Cohn er einstaklega litríkur persónuleiki og heldur því fram að til þess að ná árangri verði maður að hafa gaman í vinnunni.

Cohn sagðist aldrei vera eins skapandi, afkastameiri og áhrifaríkari en þegar hann leikur sér í vinnunni. Leikurinn snýst þess vegna ekki aðeins um að hafa gaman í vinnunni, heldur eykur hann sköpunarkraftinn. Fólk getur endurheimt barnslega hugarástand með því að ímynda sér að það sé ennþá sjö ára. ,,Ef vinnan er ekki skemmtileg lengur, þá er hún bara vinna. Sem er einmitt ástæðan fyrir að hún heitir vinna," sagði vísindamaðurinn m.a. á fyrirlestrinum.

Hann segist vera yfirlýstur nörd. Frá átta ára aldri segist hann hafa vitað að hann langaði til að vera verkfræðingur, fann sér nördaskóla, nördastarf og meira að segja konu sem er nörd eða í það minnsta verkfræðingur eins og hann. Cohn stýrir nú gervigreindarstofu MIT-IBM. Frá stofnun stofunnar árið 2017 hefur þar verið hleypt af stokkunum yfir 50 verkefnum á borð við þau að kenna gervigreind táknræna röksemdafærslu, að yfirfæra þekkingu af einu sviði á annað, hvernig eigi að halda fókus og vinna óhlutdrægt. Að byggja brýr milli háskólarannsókna og atvinnulífsins.

Áður starfaði John sem fyrirlesari við höfuðstöðvar IBM IOT í Munchen. Þar vann hann að verkefnum og flutti fyrirlestra víða um heim um það hvernig fyrirtæki og stofnanir í hinum ýmsu geirum geta unnið með IOT.

Hann tók einnig þátt í bandarískum raunveruleikaþætti, The Colony, þar sem hann ávann sér titilinn „klikkaði prófessorinn".

Vel var mætt á fundinn eins og sjá má á myndunum hér að neðan:

Finnur Oddsson, forstjóri Origo
Finnur Oddsson, forstjóri Origo
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)

Finnur Oddsson, forstjóri Origo.

© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)

© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)

© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)

© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)

John Cohn
John Cohn
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)

John Cohn.