Landsbankinn og Daníel Freyr Atlason,auglýsingamaður og eigandi vefsíðunnar Live Project, eiga í viðræðum um kaup Daníels á húsnæði bankans við Laugaveg 77. Samkvæmt frétt DV um málið stendur til að opna hótel i húsnæðinu sem samtals telur nærri 5.000 fermetra að stærð. Landsbankinn auglýsti húsnæðið til sölu í byrjun apríl á þessu ári.

Í samtali við DV staðfesti Daníel að viðræður stæðu yfir en vildi sem minnst tjá sig um málið að svo stöddu.