Þorsteinn Guðnason, stjórnarformaður DV, mun á framhaldsaðalfundi DV ehf. næstkomandi föstudag leggja fram tillögu um óháða úttekt á fjárreiðum og rekstri félagsins undanfarin ár. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Þorsteinn sendi frá sér rétt í þessu. Hann segir það ekki síst vegna þess að erfiðlega hafi gengið fyrir hluthafa og stjórnarmenn í DV ehf. að fá sjálfsagðar upplýsingar frá rekstri fyrirtækisins.

Þorsteinn segist um nokkurt skeið hafa setið undir ásökunum þess efnis að hann, auk annarra eigenda meirihluta hlutafjár í DV, vilji skerða ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðilsins. Að sögn Þorsteins er það fjarri sanni.

Hins vegar segist Þorsteinn hafa haft áhyggjur af því að tiltekin öfl hafi óeðlileg áhrif á ritstjórnarstefnu blaðsins. Slíkur orðrómur hafi magnast upp á síðkastið, og hafi leitt til þess að ásakanir hafi verið settar fram á opinberum vettvangi af Sigurði G. Guðjónssyni og Elliða Vignissyni. Á Þorsteinn tvímælalaust við ummæli þeirra Sigurðar og Elliða um að útgerðarmaðurinn Guðmundur Kristjánsson hafi lánað Reyni Traustasyni fé til þess að hafa áhrif á skrif DV, en Guðmundur hyggst stefna Elliða vegna ummælanna.

Þá segir Þorsteinn að krafa þeirra sem eigi meirihluta í DV ehf. sé að fá fulltrúa kjörna í stjórn í samræmi við hlutafjáreign. Reynir Traustason hafi þó að undanförnu beitt ýmsum leiðum til að núverandi stjórn sitji áfram óbreytt.

Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri DV, hafnar málflutningi Þorsteins og segir rangt að Þorsteinn hafi ekki haft aðgang að rekstrarupplýsingum félagsins. Hann bendir hins vegar á að Þorsteinn hafi fengið aðgang að DK-bókhaldskerfi DV ehf. í júní 2013 og hafi því haft ótakmarkaðan aðgang að rekstrarupplýsingum. Þessi aðgangur hafi verið virkur til 18. júlí 2014, þegar stjórn DV setti hann af sem stjórnarformann.

Yfirlýsing Þorsteins í heild sinni:

Ég hef um nokkurt skeið setið undir ásökunum um að vera „óvinur undir rúmi“ ritstjóra DV og hyggja á fjandsamlega yfirtöku á blaðinu. Þessar ásakanir hafa verið settar fram af forsvarsmönnum blaðsins, þótt ég hafi fyrir þeirra orð lagt DV ehf til umtalsverða fjármuni á undanförnum mánuðum og misserum til að halda rekstri þess gangandi.

Krafa okkar sem eigum meirihluta í DV ehf. er að fá fulltrúa kjörna í stjórn í samræmi við hlutafjáreign. Brölt Reynis Traustasonar undanfarið miðar að því að skapa sér stöðu, með afar ógeðfelldum aðferðum, til að núverandi stjórn sitji áfram óbreytt. Reynir og þrír aðrir stjórnarmenn eiga saman um 10% hlutafjár en við, sem eigum saman góðan meirhluta í félaginu, eigum einn fulltrúa. Tilraunir Reynis til að taka yfir stjórnina með þessu eru í óþökk eigenda og því fjandsamlegar.

Í harðri umræðu síðustu daga hefur jafnframt verið gefið í skyn að eigendur meirihluta hlutafjár í DV vilji með einhverjum hætti skerða ritstjórnarlegt sjálfstæði blaðsins. Slíkt er fjarri sanni. Ég hef sem stjórnarformaður aldrei skipt mér af einstökum fréttum í blaðinu DV eða á vefnum dv.is.

Á hinn bóginn hef ég um skeið haft áhyggjur af því að tiltekin öfl hafi óeðlileg áhrif á ritstjórnarstefnu blaðsins. Orðrómur þess efnis hefur magnast upp á síðkastið og hefur nú leitt til þess að ásakanir hafa verið settar fram á opinberum vettvangi af Sigurði G. Guðjónssyni hrl og Elliða Vignissyni bæjarstjóra í Vestmannaeyjum.

Ég tel nauðsynlegt að hreinsa blað og vef af öllum ásökunum um óeðlileg áhrif á ritstjórnarstefnu miðilsins sem hefur um áratugaskeið gefið sig út fyrir að vera frjáls og óháður. Ég mun því á framhaldsaðalfundi DV ehf næstkomandi föstudag leggja fram tillögu um óháða úttekt á fjárreiðum og rekstri DV ehf undanfarin ár.

Þetta er ekki síst gert þar sem erfiðlega hefur gengið fyrir hluthafa og stjórnarmenn í DV ehf að fá sjálfsagðar upplýsingar úr rekstri fyrirtækisins. Einfaldar fyrirspurnir hafa legið mánuðum saman án þess að vera svarað af þar til bærum aðilum.

Þá verð ég einnig að geta þess, að í dag bárust mér upplýsingar um að fyrrverandi blaðamaður á DV hyggist setja sig í samband við Fjölmiðlanefnd til að skýra frá sínum þætti varðandi fréttaflutning af málefnum Vinnslustöðvarinnar.

Það er skylda mín sem ábyrgs stjórnarmanns og blaðinu fyrir bestu að sannleikurinn komi fram í þessu máli.