Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir vilja fyrir því að rannsaka Icesave-málið og samninga þeim tengdum. Hún telur betra að ljúka Icesave-málarekstrinum fyrir EFTA-dómstólnum áður en rannsóknin getur hafist.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, velti málinu upp í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun.