Sigurður Gísli Pálmason athafnamaður hefur höfðað mál gegn 101 Skuggahverfi ehf. Málið var á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. Málið snýst um það að íbúð sem Sigurður Gísli keypti í Skuggahverfinu, í miðbæ Reykjavíkur, kláraðist ekki á tilsettum tíma og er ekki útlit fyrir að það gerist í bráð. Því vill Sigurður Gísli rifta kaupunum.

Lögmaður hans, Ásgeir Þór Árnason hrl., sagði að viðræður hefðu staðið yfir í töluverðan tíma með það að markmiði að ljúka málinu með uppgjöri. Hann sagðist vonast til þess að það gengi eftir.