Lilja Dögg Stefánsdóttir tekur innan tíðar við stöðu framkvæmdastjóra SagaMedia en undanfarin tvö ár hefur hún gegnt stöðu markaðsstjóra hjá Pfizer á Íslandi.

Lilja Dögg segir að utan vinnu rembist hún við að hlaupa. Hún tók til að mynda þátt í fyrsta heilmaraþoni sínu á sunnudaginn síðastliðinn ásamt eiginmanni sínum og eldri syni í Berlín. „Við fjölskyldan hlaupum mikið, fyrir utan yngri son minn sem er 11 ára. Við vonumst þó til að ná að smita hann sem fyrst.“

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .