Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður Samtaka atvinnulífsins.

Kosning formanns fer fram með rafrænum hætti meðal aðildarfyrirtækja SA í aðdraganda aðalfundar samtakanna sem fer fram fimmtudaginn 7. apríl 2011 á Hótel Nordica.

Þetta kemur fram á vefsíðu samtakanna.

Vilmundur Jósefsson hefur verið formaður SA frá árinu 2009 en áður var hann varaformaður samtakanna um þriggja ára skeið. Vilmundur hefur setið í stjórn SA um árabil en hann var formaður Samtaka iðnaðarins árin 2000-2006 og var stjórnarmaður í SI 1994-2000. Vilmundur er viðskiptafræðingur frá H.Í.