Skinney-Þinganes hefur þróað nýja aðferð við að vinna kjöt úr humarklóm. Að sögn Guðmundar H. Gunnarssonar, framleiðslustjóra hjá Skinney-Þinganesi, er kjötið ódýrara en hefðbundinn humar og mjög bragðmikið. Ásamt því hefur kjötið marga notkunarmöguleika.
Skinney-Þinganes hefur unnið að hinni nýju framleiðsluaðferð frá árinu 2012 í samstarfi við Matís. Guðmundur segir að samvinnan hafi nú skilað aðferð sem er talin frambærileg til framleiðslu. Nú er unnið að því að yfirfæra kunnáttuna úr rannsóknarstofu í framleiðslueiningu.
„Það er nú svona aðeins "hókus pókus" sem við erum ekki tilbúnir að tala um hvernig er gert nákvæmlega,“ segir Guðmundur spurður um það hvernig aðferðin virkar. „En þetta er í raun og veru kjöt sem er í tiltölulega litlum bitum, á formi sem þarf að móta aftur en hefur þá eiginleika að hafa mjög einkennandi humarbragð. Það þarf að meðhöndla þetta á eðlisfræðilegan hátt þannig að það gengur mikið bragð úr skelinni inn í kjötið.“
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Meðal annars efnis í blaðinu er:
- Miklar sviptingar eru á fylgi stjórnmálaflokka í Reykjavík.
- Þrír ráðherrar boða átak til að ná niður byggingarkostnaði.
- Borgarstjóri segir hugmyndir Samtaka iðnaðarins um verðmyndun fasteigna allt að því marxískar.
- Samkeppniseftirlitið skoðar hvort mál gegn Byko verði borið undir dómstóla.
- Uppsöfnuð fjárfestingarþörf í innviðum nemur hundruðum milljarða króna.
- Skortur á sölu- og markaðsþekkingu hamlar nýsköpun hér á landi.
- Miklar breytingar á fjármálamarkaði endurspeglast í breyttri markaðshlutdeild í verðbréfaviðskiptum.
- Svipmynd af Kolbeini Friðrikssyni, fjármálastjóra hjá Höld.
- Huginn og Muninn eru á sínum stað auk Týs sem fjallar um Seðlabankann og umboðsmann.
- Óðinn fjallar um Jeremy Corbyn.