Vinnsla hófst hjá Papósi ehf. á Hornafirði í síðustu viku og þar er saltfiskvinnsla nú í gangi að sögn fréttavefsins www.horn.is Þar er ennfremur haft eftir Árna Þorsteinssyni framkvæmdastjóra að Kambaröst SU sé í viðkiptum hjá Papós en að auki landar Hafnarey SF hluta aflans hjá fyrirtækinu. Hráefni er einnig keypt á mörkuðum.