Undirritað hefur verið samkomulag um kaup Vinnslustöðvarinnar hf. á 43% hlut í útgerðarfélaginu Huginn ehf. á 605 milljónir króna. Þá var einnig gert samkomulag um að Vinnslustöðin hf. kaupi 0,5% af loðnu, 1% af kolmunna og allan bolfiskkvóta Hugins ehf. en selji 1,1% af síld við Ísland og 3% af norsk-íslenskri síld. Söluverðmæti umfram kaupverðmæti er um 200 milljónir króna.

Samningarnir voru gerðir með fyrirvara um samþykki stjórnar Vinnslustöðvarinnar hf.