Vinnubúðir sem hýst gætu 1.232 manns eru til sölu í fylkinu Alberta í Kanada.

Hægt að taka niður og flytja

Mögulegt er að taka búðirnar niður og flytja hvert sem kaupendur vilja, en þær innihalda allar nýjustu tækninýjunar og þægindi. Hátæknieldhús, sjúkraaðstöðu, nútímaleg íbúðarými, bar og skemmtanahúsnæði og þráðlaust netsamband.

Jafnframt er fullkomin líkamsræktaraðstaða með hlaupabraut innanhús, veggjatennisvöllum, ásamt lyftingarbúnaði. Einnig eru golfhermar, poolborð, pingpong borð, foosballborð og fleira í búðunum. Búðirnar hafa jafnframt eigin orkuver.

Fullbúin 1.232 herbergi

Vinnubúðirnar voru byggðar af ATCO árið 2013, og innihalda þær 1.232 fullbúin herbergi. Fullbúið eldhúsið og mötuneytið getur fætt alla 1.232 íbúa á 1,5 klukkutíma.

Hér er hægt að skoða búðirnar og hvernig hægt er að gera tilboð í herlegheitin, ásamt því að spyrjast fyrir um hvernig hægt er að flytja búðirnar þangað sem þörf er fyrir þær.