Gert er ráð fyrir því að rekstrarhagnaður (EBITDA) Icelandair Group verði sjö milljónum dala lægri en spá gerði áður ráð fyrir. Samkvæmt uppfærðri spá er gert ráð fyrir að EBITDA ársins verði um 138 – 143 milljónir dala eða á bilinu tæpir 15,7- rúmir 16,2 milljarðar á árinu í stað 145 – 150 milljóna dala. Þarna munar sjö milljónum dala eða tæpum 796 milljónum íslenskra króna.

Þá segir jafnframt í uppfærðri spá Icelandair Group að gert sé ráð fyrir því að gengi evru gagnvart bandaríkjadal verði 1,35 það sem eftir ársins og að verð á flugvélaeldsneyti verði að meðaltali þúsund dalir á tonnið. Bein áhrif aðgerða flugstétta á rekstur félagsins eru áætluð um 3,5 milljónir dala.  Þá tekur spáin tillit til hærri launakostnaðar og lægri tekna en gert var ráð fyrir í upphaflegri spá, en tekjuspá félagsins lækkaði á milli mánaða sem má rekja til aðgerða flugstétta.  Í spánni er ekki gert ráð fyrir frekari kostnaði vegna vinnudeilna á árinu, að því er segir í uppfærðri spá.

Um afkomuspánna segir:

„Samkvæmt stefnu félagsins um fjárfestatengsl þá birtir félagið í upphafi hvers árs EBITDA spá og er hún uppfærð eða staðfest í tengslum við birtingu árshlutareikninga félagsins.  Samkvæmt viðmiðunarreglum félagsins um innherjaupplýsingar skal birta uppfærða spá  um leið og fyrir liggur að spáin hafi breyst um meira en 10%.  Þrátt fyrir að það eigi ekki við nú þá telur félagið, í ljósi aðstæðna, rétt að birta uppfærða EBITDA spá nú þegar rekstraruppgjör fyrir maí  liggur fyrir. Uppfærð afkomuspá tekur tillit atil uppfærðra rekstrarforsendna og núverandi bókunarstöðu.“