Vinnumálastofnun bendir þeim sem hafa áhuga á hugsanlegum atvinnutækifærum í Manitoba í Kanada á heimasíðuna, www.immigratemanitoba.com , en þar er að finna gagnlegar upplýsingar.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar.

Þar er áhugasömum beint á að senda fyrirspurn (á ensku) á eftirfarandi  netfang, [email protected] en jafnframt er tekið fram að gott sé að láta upplýsingar um menntun og starfsreynslu fylgja með.

Þá kemur fram að Vinnumálastofnun mun greina betur frá þessu samstarfi þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.

Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.