Vinnumálastofnun hefur fækkað starfsmönnum um 25. Morgunblaðið segir starfsmenn ríkisstofnana óttast uppsagnir með haustinu og hagræðing sé víða í undirbúningi.

„Starfsmenn voru 160 í byrjun árs en eru nú 135. Þeir voru til samanburðar um hundrað fyrir efnahagshrunið. Við höfum lagað reksturinn að minna atvinnuleysi og búið okkur undir fækkun fólks í nokkurn tíma, segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, í samtali við Morgunblaðið í dag.

Sjö starfsmönnum Vinnumálastofununar var sagt upp um mánaðamótin. Þá voru sjö tímabundnar ráðningar ekki framlengdar og ekki var ráðið í störf 11 starfsmanna sem létu af störfum. Alls hefur því verið fækkað um 25 stöðugildi.