Búlgarska fasteignafélagið Sigma Capital vinnur nú að skráningu í kauphöllina í London (LSE) og samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins tengist félagið Björgólfi Thor Björgólfssyni.

Í tilkynningu til LSE segir að takmarkið sé að afla um 100 milljónum evra, eða rúmlega níu milljörðum króna, með skráningunni sem þýðir að heildarverðmæti fyrirtækisins er um 300 milljónir evra, sem samsvarar tæpum 28 milljörðum króna.

Nánar er fjallað um þetta í Viðskiptablaðinu í dag.