Gengi hlutabréfa Icelandair Group lækkaði um 0,57% í veltu upp á 21 milljón króna í Kauphöllinni. Gengi bréfa Haga-samstæðunnar lækkaði á sama tíma um 0,53% og bréf stoðtækjafyrirtækisins Össurar fór niður um 0,50%.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Marel um 0,35% í afar lítilli veltu eða upp á aðeins rúmar 1,5 milljónir króna.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,11% í dag og endaði vísitalan í 1.009 stigum. Þrátt fyrir þetta hefur vísitalan hækkað um 0,33% í vikunni. Fremur lítil velta var á markaðnum eða upp á rúmar 36,7 milljónir króna.