Helsta eign Mark Zuckerberg er hlutafé hans í Facebook. Sem kunnugt er þá hefur Facebook ekki gengið vel eftir að hafa verið skráð á hlutabréfamarkað þann 18. maí. Hlutur Zuckerberg í Facebook var um 19 milljarða dala virði. Tæplega 2 vikum síðar, hefur virði hlutabréfanna rýrnað um 24% og eru 14,7 milljarða dollara virði.

Zuckerberg er því ekki lengur meðal 40 ríkustu manna heims en sem stendur er virði 40. ríkasta manns heims um 15,5 milljarðar dollara.