Verðbréfafyrirtækið Virðing stefnir að opnun skrifstofu í Lundúnaborg undir lok ársins og hefur fyrirtækið þegar sótt um tilskilin leyfi til breska fjármálaeftirlitsins vegna þess.

Skrifstofan, sem verður í Marylebone, mun hafa starfsheimildir til fyrirtækja- og fjárfestingarráðgjafar, auk móttöku og miðlunar viðskiptafyrirmæla.

Gunnar ráðinn framkvæmdastjóri í Bretlandi

Gunnar Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins í Bretlandi, en hann hefur starfað á fjármálamarkaði í yfir 20 ár, stærstan hluta þess hefur hann verið búsettur í Bretlandi og Bandaríkjunum.

Undanfarið hefur hann starfað sem sérfræðingur á framtakssjóðasviði Virðingar, auk þess að seitja í stjórnum Securitas, Íslenska gámafélagsins og varastjórn Ölgerðarinnar.

Gunnar starfaði í Bretlandi á árunum 2004-2015, fyrst hjá Baugi Group sem framkvæmdastjóri smásölufjárfestinga og síðar sem forstjóri. Síðar hefur hann starfað meðal annars sem ráðgjafi skilanefndar Landsbankans varðandi eignir bankans í Bretlandi, þar á meðal Iceland Foods, House of Fraser og Hamleys.

Til að greiða fyrir fjárfestingu á Íslandi

„Starfsemi Virðingar hefur vaxið mjög undanfarin misseri og opnun skrifstofu í Lundúnum er liður í að styrkja stöðu okkar í að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur sem og greiða frekar fyrir fjárfestingu erlendra aðila á Íslandi,“ segir Hannes Frímann Hrólfsson, forstjóri Virðingar í fréttatilkynningu.

„Hérlendis hefur orðið jákvæð efnahagsleg þróun, fjárhagsleg styrking ríkisins og bætt áhættuflokkun þess á erlendum mörkuðum og í framhaldi af þeirri þróun og áframhaldandi losun fjármagnshafta teljum við að tímasetningin sé hárrétt til að taka þetta skref og nýta það viðamikla tengslanet sem félagið og starfsmenn þess búa yfir.“