Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi í mars og apríl 2015 nam tæpum 603 milljörðum króna sem er 14,4% aukning miðað við sama tímabili árið 2014. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofu Íslands .

Á síðustu tólf mánuðum nemur veltan rúmum 3.600 milljörðum króna og er aukningin 8,0% samanborið við 12 mánuði þar áður. Veltan hefur aukist mest í flokknum námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu.