Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi í maí og júní 2015 nam 683 milljörðum króna sem er 10,9% aukning miðað við sama tímabil árið 2014. Þetta kemur fram í nýrri frétt frá Hagstofu Íslands .

Á síðustu 12 mánuðum er aukningin 9,0% samanborið við 12 mánuði þar áður.

Veltan hefur aukist mest í flokknum námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu. Mikil veltuaukning er einnig í framleiðsla annarri en fiskvinnslu, byggingastarfsemi og rekstri gisti- og veitingastaða.