Virgin Atlantic flugfélagið hefur samið við flugvélaframleiðandann Boeing um kaup á allt að tuttugu og þremur 787 Dreamliners flugvélum. Eru kaupin meðal annars liður í því að styrkja stöðu Virgin á flugleiðum yfir Atlantshafið. Andvirði viðskiptanna er sagt vera hátt í þrír milljarðar Bandaríkjadala en talið er líklegt að einhver afsláttur fylgi slíkum magnkaupum.