Samanlagt virði allra hestanna 12 sem lentur ofan í Tjörninni í Reykjavík á þriðjudag er talið vera á bilinu 3 – 400 milljónir króna.

Þetta kemur fram á fréttavef RÚV í dag en eigendur hestanna óttast að þeir gætu hafa sýkst af salmónellu þar sem mikið fuglalíf er í tjörninni og óþrifnaður.

Á vef RÚV kemur fram að eigandi eins hestanna segir þá alla hafa fengið mótefni gegn salmónellu.

Fjórir hestar ofkældust og í morgun var einn þeirra enn á dýraspítala.

Á vef Hestafrétta má sjá myndband og ljósmyndir af því þegar ísinn brotnaði undan hestunum.