Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital Fjárfestingarbanka, varar markaðsaðila við frjálslegri umgengni við reglur um yfirtökuskyldu og segir að slíkt virðingaleysi komi aðeins niður á þeim sjálfum. Til lengri tíma muni það rýra traust á markaðnum og þar með hægja á vexti hans, að því er fram kemur fréttatilkynningu.

Þorvaldur var einn ræðumanna á ráðstefnu sem Fjármálaeftirlitið hélt í morgun um yfirtökur fyrirtækja og áhrif yfirtökureglna en yfirtökuskylda myndast þegar einn eða fleiri aðilar sem tengjast nánum böndum eignast 40% hlut eða meira í skráðu hlutafélagi.

,,Það verður að ganga um þessar reglur á spariskónum. Hingað til hefur umgengni um yfirtökumörkin einkennst af léttúð, þar sem menn skauta mjög nálægt mörkum, virða að vettugi þau sjónarmið sem liggja að baki yfirtökuskyldunni og skeyta engu um úrskurði Yfirtökunefndar,? sagði Þorvaldur í ræðu sinni. Hann sagði að Yfirtökunefnd hafi í tveimur málum úrskurðað að málsaðilar væru yfirtökuskyldir. Í báðum tilvikum hafi málsaðilar selt sig niður fyrir mörk yfirtökuskyldunnar og þannig komist framhjá afleiðingum hennar. ,,Þetta lýsir nokkru virðingaleysi við reglurnar enda er þarna verið að dansa á línunni,? segir Þorvaldur.

Íslenskir markaðsaðilar og útrásarfyrirtæki hafa að undanförnu mátt þola harða gagnrýni erlendis frá um það að hér á landi sé eignarhald þröngt og ógagnsætt og vöxtur markaðsins of hraður. Þorvaldur segir að þó að þessi gagnrýni sé að mörgu leyti ósanngjörn, þá verði því ekki neitað að eignarhald á íslenska verðbréfamarkaðnum sé með öðrum hætti en á erlendum mörkuðum enda smæð þjóðarinnar slík að boðleiðir séu stuttar og frjálsræði ríki í samskiptum.

Þorvaldur telur hins vegar að þessari gagnrýni megi auðveldlega snúa upp í styrk. Nálægð markaðsaðila á Íslandi sé að mörgu leyti styrkur hins íslenska markaðar en þó aðeins ef menn virða regluverkið. ,,Þetta þrönga eignarhald og ,,grunsamlega? góð kynni manna á milli hér á Íslandi kallar á að reglurnar séu skýrar og að menn fari eftir þeim þannig að utanaðkomandi fjárfestar treysti sér til þátttöku. Skýrar reglur og virðing fyrir þeim er meginforsenda þess að íslenski markaðurinn haldi áfram að þróast með fleiri skráðum fyrirtækjum, aukinni erlendri þátttöku í hluthafahópum og stjórnum fyrirtækja og vaxandi viðskiptum erlendra banka í Kauphöll Íslands.?