Héraðsfréttablaðið Feykir segir frá því að undanfarið hafi viðræður staðið yfir við aðila sem hyggjast hefja rekstur í rækjuvinnslunni á Blönduósi að nýju og er gert ráð fyrir að það skýrist á næstu dögum hvort af opnum verði eða ekki. Útlitið í atvinnumálum á Blönduósi hefur ekki verið bjart að undanförnu og munar þar mest um lokun rækjuvinnslunnar Særúnu þar sem 25 manns höfðu vinnu.