Icelandic Group hf. er kunnugt um að viðræður standi yfir um viðskipti á verulegum eignarhlut í félaginu. Ef viðskiptin ganga eftir verða eignarhlutirnir seldir til nokkurra aðila þannig að ekki verður um yfirtökuskyldu að ræða. Gert er ráð fyrir að niðurstöður viðræðnanna liggi fyrir síðar í dag segir í tilkynningu Icelandic Group til Kauphallarinnar.