Samningsumleitanir hafa staðið um nokkurt skeið milli Íslands og Frakklands sem formennskuríkis Evrópusambandsins með það markmiði að leysa deilur tengdar IceSave reikningum í útibúum Landsbankans í nokkrum Evrópuríkjum.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að slíkum viðræðum hafi verið haldið áfram í Brussel í dag á fundum sem hafi einkennst af góðum anda og vinsemd.

„Ríkisstjórnin er hæfilega vongóð um að svo verði áfram og viðræðurnar leiði að lokum til þess að samkomulag í þágu allra málsaðila náist. Málið er á viðkvæmu stigi og ekki hægt að segja meira um það að svo stöddu.“

Enginn tímafrestur er á þessum viðræðum og fullyrðingar þar um standast alls ekki.