Yfirtökutilboð Gætna ehf. til hluthafa Vátryggingafélags Íslands hf. rann út föstudaginn 17. desember 2004 og hafði þá staðið í fjórar vikur. Gætur ehf. og eigendur félagsins eiga nú samtals 99,910% heildarhlutafjár VÍS. Eigin bréf VÍS nema 0,086% og eign annarra hluthafa 0,004% af heildarhlutafé. Kauphöll Íslands hf. hefur fallist á beiðni stjórnar VÍS um afskráningu hlutabréfa félagsins á Tilboðsmarkaði Kauphallararinnar. Bréfin verða afskráð næstu daga.