Nýlega var gengið frá kaupum VÍS á hlut Exista í Öryggismiðstöð Íslands. Fyrr á árinu hafði VÍS eignast lítinn hlut og er eignarhlutur VÍS í Öryggismiðstöðinni nú samanlagt um 80%, að því er kemur fram á vefsíðu VÍS. Framkvæmdastjóri Öryggismiðstöðvarinnar og helstu stjórnendur félagsins ráða yfir um 20% hlut.

VÍS er í eigu Exista.