Sættir hafa náðst í máli Lífsverks lífeyrissjóðs gegn VÍS og fyrrum stjórnendum sjóðsins, vegna fjárfestinga sem stjórnendurnir tóku ákvarðanir um á árinu 2008. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Stjórn Lífsverks fór fram á bætur í samræmi við gildandi stjórnendatryggingu milli aðilanna á þeim forsendum að um hefði verið að ræða fjárfestingar sem stönguðust á við þær fjárfestingarheimildir sem lífeyrissjóðir hefðu samkvæmt lögum. Í apríl í fyrra féll dómur Héraðsdóms Reykjavíkur á þann veg að fallist var að stærstum hluta til á kröfu Lífsverks. Var VÍS dæmt til að greiða sjóðnum 852 milljónir króna auk vaxta og dráttarvaxta,“ segir í tilkynningunni.

VÍS áfrýjaði málinu til Hæstaréttar og stóð fyrir að taka málið fyrir í dag. Áður en til þess náðist samkomulag þess efnis að VÍS greiði Lífsverki 835 milljónir króna með eingreiðslu og teljast það fullar sættir í málinu hvað varðar tryggingafélagið og fyrrum stjórnendur sjóðsins, að því er kemur fram í fréttatilkynningunni.

„Við erum ánægð með að samkomulag skyldi hafa náðst áður en málið yrði tekið fyrir í Hæstarétti með þeirri óvissu sem því fylgir og teljum að um sé að ræða góða niðurstöðu fyrir sjóðfélaga. Vissulega gefum við eftir af okkar ítrustu kröfum en niðurstaðan samsvarar því að sjóðurinn fengi greitt sem svarar til eins tjónsatburðar, sem var að hámarki 500 milljónir króna, auk dráttarvaxta og kostnaðar. Þetta sýnir að það mat stjórnar var rétt að hagsmunum sjóðfélaga væri best gætt með því að láta reyna á bótaskyldu fyrir dómi,“ segir Valur Hreggviðsson, stjórnarformaður Lífsverks.