Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,29% í dag og endaði í 1890,69 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,55% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa VÍS, eða um 3,71% í viðskiptum sem hljóða upp á 728 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 8,54 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa N1, eða um 0,32% í 295 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf N1 er þá 62,60 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Eikar, eða um 0,35% í 313 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Eikar er þá 22,45 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Haga einnig, eða um 0,10% í viðskiptum upp á 63 milljónir króna. Verð á hvern hlut er þá 48,58 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 5,6 milljarðar króna.