Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,52% í dag og endaði í 1.888,33 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,42% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa VÍS, eða um 2,23% í viðskiptum sem hljóða upp á 307 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 37,35 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Símans, eða um 1,61% í 259 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair Group er þá 3,16 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,45% í 553 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Icelandair er þá 37,35 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa TM í dag, eða um 0,86% í viðskiptum sem hljóða upp á 244 milljónir króna. Verð á hvert bréf er þá 23 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 1,9 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,2 milljarðar króna.