Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,83% í dag og stendur nú í 1.709,19 stigum. Hefur vísitalan lækkað um 0,08% frá byrjun árs. Talsverð velta var á hlutabréfamarkaði eða 4.152 milljón krónu velta, einnig var 4.388 milljón króna velta á skuldabréfamarkaði.

Gengi hlutabréfa VÍS hækkaði mest í dag eða um 3,82% í 154,2 milljón króna viðskiptum. Einnig hækkaði gengi hlutabréfa VÍS um 3,1% í 197,3 milljón króna viðskiptum og sömu sögu má segja um hlutabréf Sjóvá, sem hækkuðu um 2,81%.