Hagnaður VÍS á fyrsta ársfjórðungi ársins 2017 nam 191 milljónum króna samanborið við 145 milljónir á sama tímabili í fyrra.

Bókfærð iðgjöld fyrirtækisins jukust um 17% frá sama tíma í fyrra og eigin tjónakostnaður hækkaði um 18%. Samsett hlutfall félagsins var 107,2% en var 104,5% á sama tímabili í fyrra.

Tekjur félagsins af fjárfestingastarfsemi námu 677 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2017 samanborið við 435 milljónir á sama tíma árið 2016. Hagnaður á hlut nam 0,09 krónum samanborið við 0,06 krónur fyrir sama tímabil 2016.

Eigið fé VÍS í lok ársfjórðungsins nam 15,5 milljörðum og lækkar um tæpan milljarð milli ára. Skuldir félagsins nema 35 milljörðum króna og eignir 50,5 milljarðar króna.

Jakob kveður: Kaupin á Kviku gefa áhugaverða möguleika til framtíðar

„Iðgjöld félagsins eru að vaxa talsvert og munu gera það áfram, ekki síst vegna hærri meðaliðgjalda, en einnig vegna nýrra viðskipta. Þannig eru eigin iðgjöld að vaxa um 12,2% frá sama tímabili í fyrra, en einnig eru bókfærð iðgjöld að vaxa um 17%, sem gefur til kynna áframhaldandi vöxt eigin iðgjalda á árinu,“ segir Jakob Sigurðsson, fráfarandi forstjóri VÍS.  „Félagið hefur frá árinu 2015 unnið að hækkunum iðgjalda til að bregðast við mikilli hækkun í tíðni tjóna og tjónakostnaðar.  Því er tjónakostnaður á fjórðunginum nokkur vonbrigði, en vel er fylgst með þeirri þróun áfram og brugðist frekar við ef þörf krefur.  Samsett hlutfall var 107,2% sem er hærra en á sama tíma í fyrra, en afkoma ökutækjatrygginga og slysatrygginga er enn óviðunandi þó miði í rétta átt.  Áætlanir félagsins gera engu að síður ráð fyrir að markmið félagsins um að samsett hlutfall á árinu 2017 verði undir 100% muni nást.

Félagið eignaðist 21,8% hlut í Kviku banka á tímabilinu.  Kvika er öflugt fyrirtæki sem stendur frammi fyrir spennandi tækifærum auk þess sem kaupin gefa áhugaverða möguleika til framtíðar.  Ávöxtun fjárfestingaeigna gekk ágætlega að undanskildum skráðum innlendum hlutabréfum.  Ávöxtun fjárfestingaeigna nam 1,97% á fjórðunginum.

Eins og greint var frá í byrjun árs hefur verið unnið að rýni og endurskoðun á stefnu VÍS með víðtækri þátttöku stjórnar og starfsfólks. Þessari vinnu er nú lokið og er unnið að innleiðingu.  Gert er ráð fyrir að niðurstöður verði kynntar frekar síðar í vor.  Ég vil nota tækifærið og þakka viðskiptavinum VÍS, starfsfólki, stjórn og hluthöfum fyrir ánægjulegt samstarf og óska þeim góðs gengis í framtíðinni“