Gengi hlutabréfa VÍS hækkaði um 3,69% í Kauphöllinni í dag. VÍS var skráð á markað í gær og var þetta annar viðskiptadagurinn með hlutabréf félagsins. Gengið hefur nú hækkað um tæp 20% frá útboði.

Þá hækkaði gengi bréfa Eimskips um 2,04% í dag, Össurar um 1,04%, Icelandair Group fór upp um 0,79%, bréf Haga um 0,35%, Marel um 0,34% og fasteignafélagsins Regins um 0,22%.

Á móti lækkaði gengi bréfa Vodafone um 1,46%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,74% og endaði hún í 1.204 stigum.