Vátryggingafélag Íslands, VÍS, hefur stofnað dótturfélagið SIV eignastýringu sem mun bjóða upp á sjóða- og eignastýringu. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir félagið að fjárfestingar séu önnur af tveimur grunnstoðum í starfsemi sinni og því falli eignastýring vel að starfsemi félagsins. Þá mun SIV eignastýring stýra fjárfestingareignum VÍS.

„Árangur VÍS í fjárfestingum hefur verið mjög góður á undanförnum árum. Fjárfestingartekjur félagsins frá árinu 2018 nema um 21 milljarði króna og telja fjárfestingareignir þess nú um 45 milljarða króna.“

Í framhaldi af stofnun SIV mun VÍS sækja um starfsleyfi til eignastýringar og rekstrar sjóða. Stefnt er að því að starfsemi félagsins hefjist um leið og starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands liggur fyrir.

„Örar samfélagsbreytingar kalla á stöðuga endurskoðun á þjónustuframboði, ekki síst í trygginga- og fjármálaþjónustu. Þessi útvíkkun á starfsemi VÍS endurspeglar þá þróun sem hefur átt sér stað víða í Evrópu þar sem tryggingafélög hafa boðið upp á fjölbreyttari trygginga-og fjármálaþjónustu.“

Sjá einnig: Vildarkerfi væntanlegt hjá VÍS

VÍS segir ljóst að spennandi tækifæri séu til staðar á íslenskum fjármálamarkaði en fjárfestingarkostum í skráðum verðbréfum hafi fjölgað til muna á undanförnum árum, þátttakendum á markaðnum fjölgað talsvert með þátttöku almennings og uppfærslu Íslands í flokk nýmarkaðsríkja hjá FTSE Russell.

Arnór og Þorkell stýra SIV

Arnór Gunnarsson verður framkvæmdastjóri SIV eignstýringar en hann starfar í dag sem forstöðumaður fjárfestinga hjá VÍS. Þorkell Magnússon, sem starfað hefur sem forstöðumaður sjóðastýringar Kviku banka, verður forstöðumaður sjóðastýringar hjá SIV eignastýringu. Þeir störfuðu saman hjá Öldu sjóðum, Stefni og Kaupþingi.

VÍS mun fara með ráðandi hlut í SIV eignastýringu og mun eitt fara með virkan eignarhlut. Fram kemur að Arnór og Þorkell verði meðal helstu hluthafa SIV.

Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS:

„Við leggjum ríka áherslu á að VÍS þróist í takt við samfélagið og horfum til þess að bjóða upp á fjölbreyttari trygginga- og fjármálaþjónustu. Sterk staða á tryggingamarkaði, breiður viðskiptavinagrunnur, fjárhagslegur styrkur, öflugur tæknilegur grunnur og góður árangur í fjárfestingum ─ eru styrkleikar sem við viljum byggja á. Við höfum góðan grunn og afar sterka innviði til þess að taka næstu skref.

Ég trúi því að árangur hins nýja félags muni byggja á umtalsverðri þekkingu og reynslu öflugs starfsfólks í fjárfestingum og eignastýringu. Ég tel að þetta skref í útvíkkun starfseminnar, sem eignastýringin felur í sér, sé mikið heillaskref ─ og auðvitað mikil tímamót í sögu félagsins.“